Færslur: 2012 Febrúar

23.02.2012 11:51

Æfing 28. feb 2012

Dömur mínar.

Þá er komið að því.
Nóturnar eru komnar  undir Skrár og í möppu sem heitir Dömur. Hvað annað?
Nú er að mæta vel útbúnar og kátar á þriðjudagskv.

MJK

20.02.2012 22:17

Sameiginleg æfing

Sjáumst öll hress og kát á morgun í Fáksheimilinu :)

13.02.2012 12:30

ÆFING 14. FEB. 2012

ÁGÆTU HERRAMENN..

NÚ ERU KOMIN 2 LÖG FYRIR YKKUR TIL AÐ HALA NIÐUR. ÞAU ERU Í MÖPPU UNDIR SKRÁR OG HEITA, HEYR MÍNA BÆN OG WITH A LITTLE HELP FROM MY FRIENDS.
NIÐUR MEÐ ÞETTA OG SJÁUMST HRESSIR.

MUNIÐ EFTIR SMÁFUGLUNUM.

MJK

07.02.2012 22:47

Næstu æfingar

Líkt og kom fram á æfingu í kvöld verður næsta æfing aðeins fyrir karlaraddir og tveim vikum síðar aðeins fyrir kvenraddir.

14.febrúar  Tenór/Bassi
21.febrúar  Samæfing (allar raddir)
28.febrúar  Alt/Sópran

Tenór stefnir á raddæfingu föstudaginn 17.febrúar, nánari upplýsingar hjá Ívari.
Í þessari viku munu sóprönur mæta í raddæfingu, annars vegar á fimmtudag (9.feb) kl. 17-18 og hinsvegar á föstudag (10.feb) í hádeginu.

Það er þá rúm fyrir æfingu fimmtudaginn 16.febrúar ef einhver getur nýtt sér það og svo vikuna eftir það.

Hafið samband við ykkar raddformenn fyrir frekari upplýsingar.

07.02.2012 00:00

Æfing 7. feb. 2012

Fyrir æfingu í kvöld skulum við vera með nótur af:

Hver á sér fegra föðurland, Ofar regnbogans geislum, Í kvöld er glitra gullin ský, Í fjarlægð, Nótt, Í bljúgri bæn, Vikivaki, Ó, Guð vors lands.

Listinn yfir það sem við þurfum að hafa í möppunni okkar er að lengjast aðeins. Lítið á hann á blogginu hér fyrir neðan.

Munið eftir smáfuglunum.

MJK
  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 261156
Samtals gestir: 60980
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:57:05