14.05.2012 22:19

Dagskrá aðalfundar

Á morgun kl. 20:00 mun Aðalfundur kórsins verða haldin í Fáki.  Aðeins eitt málefni verður á dagskrá.
Breytingar á starfsemi kórsins næsta vetur
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta enda málefni sem snertir alla sem hafa gaman af kórstarfinu.

Á fundinum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Vegna ábendinga: 
Það er að sjálfsögðu farið í gegnum venjubundin aðalfundastörf.
1. Skýrsla stjórnar
2. Fjármál
3. Dagskrá næsta vetrar
4. Kosning í nefndir
5. Kosning í stjórn
6. Önnur mál.

10.05.2012 12:30

SLÚTT

Endanlegur lagalisti er kominn á netið og heitir Án þín - Með þér og er í böppunni lagalistar.

MJK

08.05.2012 23:19

Æfing og undirbúningur

Sæl,

Hér er lagalistinn sem farið verður í á æfingu á morgun
Án þín, með þér
Ljóssins englar
Undir stórasteini
Ég er kominn heim/Að ferðalokum.
Ég leit eina lilju í holti
Sprettur
Frelsi ég finn
Í bljúgri bæn
Í fjarlægð
Vikivaki
Draumalandið
Í kvöld er glitra gullin ský
Megi gæfan þig geyma
Halleluja
Við höfum fengið inni í sal í Síðumúla 11 (sami og fyrir jólin), mætum kl. 17:30 og leggjum metnað í undirbúninginn.

Svo eru hér upplýsingar um ferðina á Suðurnesið
13:30 - Lagt af stað í rútu frá Fáki, farið í ferð um Vatnsleysuströnd, út að Höfnum og suður-vestur fyrir Keflavíkurflugvöll
17:00 - Tónleikar í safnaðarheimili Keflavíkurkirju.
20:00 - Matur og skemmtun í félagsheimili Mána
Þeir sem fara á eigin vegum þurfa að vera mættir í safnaðarheimilið ekki seinna en kl. 16:00

Nánari upplýsingar í þessu skjali

Þeir sem eru með eldri útgáfu af Word geta opnað skalið hér.

04.05.2012 16:13

Auglýsing

Ingveldur Ýr og sönghópur hennar Spectrum heldur tónleika þann 13.maí n.k. í Neskirkju, smellið á textann hér fyrir neðan til að opna skjalið

Auglýsing

03.05.2012 12:54

Aðalfundur - auglýsing

Aðalfundur Brokk-kórsins verður haldin í Fáksheimilinu, þriðjudaginn 15.maí kl. 20:00

Dagskrá verður birt í næstu viku

29.04.2012 23:19

Velheppnuð kirkjureið

Að sögn séra Valgeirs, voru um 200 hross í reiðinni í dag, sem er bæting frá fyrra ári.  Aðstæður fyrir hestana var til fyrirmyndar og mikil gleði í hópnum :)

Þar með er hluti kórsins komin í frí, en þeir sem ætla suður með sjó bæta á sig tveimur æfingum í maí, mánudaginn 7. (líklegst í Seljakirkju) og þriðjudaginn 8. (væntanlega í Fáki), nánari upplýsingar verða settar á netið þegar nær dregur.

25.04.2012 11:35

Fáksreið í Mosfellsbæ

Nokkrar upplýsingar vegna Fáksreiðar

Lagt er af stað kl. 13:00 frá reiðhöll Fáks í Víðidal, best að allir séu mættir þar í síðasta lagi 12:40

Það er svo Ca. 14:00 í Óskoti (sjá mynd)

Og svo Ca.  15:00 í félagsheimili Harðar í Mosó ..

Tengill inn frétt á Fákssíðunni


24.04.2012 20:40

Skipulag á messu

Röðin á messunni verður svona:

Forspil
Signing
Upphafsbæn
480 Dýrðlegt kemur sumar
Miskunnarbæn
Dýrðarsöngur
223 Þig lofar faðir líf og önd
Bæn fyrir altari
Lestur úr gamla testamenti og pistli

Hallelujah

Guðspjall
Trúarjátning
029 Mikli Drottinn
Prédikun

Vikivaki
Í bljúgri bæn

Kirkjubæn

Ég veit eina lilju

Blessun
515 Áfram Kristsmenn krossmenn
Útgöngubæn

Megi gæfan þig geyma

Við útbúum hefti með lögunum.

23.04.2012 15:35

Æfing í kvöld

Æfing fellur niður á morgun en við tökum snúning á kirkjulögunum í Selkjakirkju kl. 19:30 í kvöld

19.04.2012 20:22

Sumar

Gleðilegt sumar


Mynd tekin í vorferð kórsins 2011

17.04.2012 16:10

Messan og vorferð

Nú styttist óðfluga í messuna og við einbeitum okkur að því að æfa fyrir hana í kvöld.

Í kvöld þarf að skrá sig fyrir vorferðina, tæpur mánuður til stefnu og við þurfum að sjá hversu margir mæta.  Gera þarf upp kórgjöld fyrir ferðina til að geta tekið þátt.

10.04.2012 12:33

Dagskrá fram á sumar og Aðalfundur

Nú styttist óðfluga í kirkjureiðina, en hún verður sunnudaginn 29.apríl. Laugardaginn á undan, þann 28.apríl er reiðtúr í Mosfellsbæ með Fáki þar sem við ætlum að gera það sem við erum best í, syngja og hafa gaman af.

Munið að skrá ykkur fyrir ferðina á suðurnesið, þann 12.maí.

Sú nýbreyttni verður á starfinu að Aðalfundur verður haldin í vikunni á eftir (líklegast 15.maí).  Taka þarf ýmsar ákvarðanir sem snúa að næsta starfsári og þótti okkur betra að hafa fundinn að vori.

Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur

03.04.2012 15:01

miðvikudagsreiðtúr

Reiðtúrinn sem var ekki farinn á laugardaginn leggur af stað frá Andvara kl. 18:00 á morgun, riðið verður um Heimsenda, niður í Melahvarf og þaðan góður hringur í vonandi frábæru veðri. 

Nesti verður í boði að lokinni ferð, þó ekkert sterkara en mjólk, aðrar veigar tekur hver fyrir sig.


Frekari upplýsingar veita Vigdís (864 0972), Siggi (660 3197) og Áslaug, en hún tekur ekki síma :)




29.03.2012 22:28

Reiðtúr

Áætluðum sameiginlegum reiðtúr er frestað fram á miðvikudag, fylgist með blogginu, tímasetning verður sett inn þegar nær dregur.

Annars erum við í fríi fram yfir páska, næsta æfing verður þriðjudaginn 10.apríl.

Páskakveðja

20.03.2012 10:18

Æfing 20. mars, 2012

Þá er lagalistinn fyrir þessa vorönn kominn undir Skrár.
Hann er í möppunni Lagalistar.

Brokkkórinn - lagalisti - vorönn 2012.

Sjáumst í kvöld.

MJK
  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 261156
Samtals gestir: 60980
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:57:05