Flokkur: Uppákomur

04.12.2008 21:52

Söngur í gær.

Það er styst frá því að segja að söngurinn í gær heppnaðist vel, bæði í Húsasmiðjunni og eins á Grensás.

Í Húsasmiðjunni í Grafarholti var sérstakur starfsmannadagur fyrir starfsfólk Húsasmiðjunnar og var gaman að heyra hvað æfing þriðjudagsins hafði gert fyrir karlana, en þeir voru ansi öflugir þetta kvöld.  Spurning hvort við stelpurnar fáum ekki eina svona æfingu líka emoticon

Það var vel tekið á móti okkur á Grensás, við sungum nokkur lög úr dagskránni og eftir söngin var okkur boðið upp á kaffi og meðlæti, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir móttökurnar.

Nú vil ég eindregið hveta þá sem tóku myndir af atburðum síðustu vikna að koma þeim á framfæri svo hægt sé að setja þær á netið.

18.02.2008 20:23

Vel heppnaður söngur á laugardaginn

Samkvæmt mínum heimildum   var mikil lukka með sönginn á laugardaginn og mætingin var góð, bæði í söngnum og eins á blótinu. Þið sem tókuð myndir hægri vinstri, megið endilega koma þeim áleiðis til mín svo við getum sett þær á netið.

Nú höldum við áfram okkar striki fyrir næstu uppákomur og hittumst hress og kát á morgun

04.09.2007 07:50

Stóðréttir, upplýsingar og verð frá Gauksmýri

Stóðréttir í Víðidalstungurétt 5.-7.óktóber 2007.

Verðtilboð frá Sveitasetrinu Gauksmýri 2007.

Tilboð 1

Per mann Innifalið: Gisting í eins manns herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag og hestur á föstudag og laugardag. Verð 29.000 kr

Tilboð 2

Per mann Innifalið: Gisting í tveggja manna herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag og hestur á föstudag og laugardag. Verð 25.000 kr

Tilboð 3

Per mann Innifalið: Gisting í eins manns herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag og hestur á föstudag og laugardag. Verð 24.000 kr

Tilboð 4

Per mann Innifalið: Gisting í tveggja manna herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag og hestur á föstudag og laugardag. Verð 21.500 kr

Tilboð 5

Per mann Innifalið: Gisting í eins manns herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag . ( án hests)  Verð 24.000 kr

Tilboð 6

Per mann Inifalið: Gisting í tveggja manna herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag (án hests)Verð 20.000 kr

Tilboð 7

Per mann Innifalið: Gisting í eins manns herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag ( án hests)Verð 19.000 kr

Tilboð 8

Per mann Innifalið: Gisting í tveggja manna herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði, hádegisverður á föstudag, kvöldverður föstudag og 3ja rétta kvöldverður á laugardag og hestur á föstudag og laugardag. Verð 16.500kr

Tilboð 9

Per mann Inifalið Gisting í eins manns herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði 16.800 kr

Tilboð 10

Per mann Inifalið: Gisting í tveggja manna herbergi með baði í tvær nætur ásamt morgunverði, 11.300 kr

Tilboð 11

Per mann Innifalið: Gisting í eins manns herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði 13.000 kr

Tilboð 12

Per mann Innifalið: Gisting í tveggja manna herbergi án baðs í tvær nætur ásamt morgunverði, 8.200 kr

08.08.2007 08:10

Stóðréttirnar í haust

Kæru kórfélagar,
minni á stóðréttaferð í Víðidalstungurétt 5.-7. október. Hver og einn þarf að panta gistingu og hestakost(eða koma með hest) fyrir sig og sína. Nánari upplýsingar á http://www.gauksmyri.is/ferdir_gongur_rettir.htm 
Vegna ásóknar er best að panta sem fyrst en ég mun setja upplýsingar um pakkaverð á bloggið um leið og það er komið frá Gauksmýri.

21.03.2007 10:44

Viðburðir næstu vikur

Til að taka saman það sem farið var yfir í gær, í stuttu máli, þá eru tveir viðburðir eftir á dagskrá.

Kóramót þann 19.maí, við syngjum með kórunum hennar Gróu í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Dagskráin verður auglýst nánar síðar en verður svipuð og undanfarin ár, þ.e. við mætum um hádegið (ca. 11:00?) og æfum með kórunum.  Söngskemmtun hefst um kl. 14:00 (á eftir að njörva niður) og svo verður sameiginlegur kvöldverður, söngur gleði og gaman.

Árlegur reiðtúr kórsins verður á Löngufjörur, laugardaginn 26.maí, um Hvítasunnuhelgina.

Takið þessa tvo daga frá.  Dagný hefur tekið að sér að halda utan um mætingu á þessa viðburði og þið getið sent henni póst til að staðfesta mætingu.  Vinsamlega takið fram hvort þið takið með ykkur hest í reiðtúrinn. Póstfang hjá Dagný er dagny@landslag.is.

Athugið að næsta æfing (26.mars) fellur niður vegna utanlandsferðar Gróu.

03.03.2007 16:01

Söngur í Fáki í kvöld

Nokkrir punktar fyrir kvöldið:

Mæting kl. 20:15 í kvöld:
Strákar mæti í svörtu með hvítu bindin og stelpurnar einnig í svörtu og mega vera með eitthvað skemmtilegt blingbling (Nýtt tökuorð yfir glingur í yfirstærð  ) gull eða silfur.

Lög:
Lion sleeps to night,
Án þín, með þér,
Einskonar ást,
Bítlasyrpa,
Ég ríða vil til fjalla
og svo endum við á útgöngulaginu.

01.12.2006 09:49

Söngur á laugardaginn 2.des

Mæting að Engjategi 11 (Bræðraminni ehf Kiwanishúsinu)  fyrir kl. 11:00, byrjum á upphitun kl. 11:00.
Hlé til 12:00
Áætlað er að við syngum rétt um 12:20 og byrjum hugsanlega á einu lagi.
Hugvekja.
Söngur,
Áætlað að þetta sé búið um 12:30 (12:40 kannski)

Þau lög sem við höfum verið að æfa fyrir þetta eru:

Er líða fer að jólum (byrjum hugsanlega á því, fyrir hugvekju)
Feliz Navidad
Jinglebell Rock
Meiri sjór, meiri snjór ...
Hátíð í bæ.
Folaldið mitt (hann Fákur)

Slóð á símaskránni
Engjateigur 11

23.11.2006 12:58

Engin æfing næsta þriðjudag

Engin æfing verður þriðjudaginn 28.nóvember.  Æfing verður hins vegar á undan söngnum á laugardaginn.
Líklegast munum við mæta vel fyrir fund og tökum létta æfingu fyrir.

19.08.2006 12:54

Löngufjörur 26. - 27. ágúst

Bíðum með þetta þar til síðar...

05.06.2006 11:05

Vorreið 2006

Myndir frá reiðtúrnum komnar inn.  Endilega bætið við myndum ef þið eigið einhverjar.

24.05.2006 11:22

Tímasetningar fyrir kórreiðina

Hittumst við krána á Heimsenda og stefnum á að leggja þaðan klukkan 19:00
Tökum rúnt um vatnið og kíkjum á hesthúsið hjá Sigga stórtenór.

Svo bíður eftir okkur grillað lambakjöt og meðlæti í félagsheimili Andvara.
Söngvatn verður á boðstólunum með matnum.

08.05.2006 15:53

Miðvikudagur 24. maí

Nú taka allir 26 maí frá fyrir stórskemmtilegan reiðtúr

Dagskrár - plan:
1. hittast við krána á Heimsenda
2. reiðtúr um Elliðavatn
3. Stoppa heima hjá Sigga
4. Aftur á krána!
Tímasetningar munu svo koma fljótlega...

Reiðtúr, veitingar og grillstemming... hvað gæti verið betra?
  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 110
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 261156
Samtals gestir: 60980
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:57:05