07.02.2012 22:47

Næstu æfingar

Líkt og kom fram á æfingu í kvöld verður næsta æfing aðeins fyrir karlaraddir og tveim vikum síðar aðeins fyrir kvenraddir.

14.febrúar  Tenór/Bassi
21.febrúar  Samæfing (allar raddir)
28.febrúar  Alt/Sópran

Tenór stefnir á raddæfingu föstudaginn 17.febrúar, nánari upplýsingar hjá Ívari.
Í þessari viku munu sóprönur mæta í raddæfingu, annars vegar á fimmtudag (9.feb) kl. 17-18 og hinsvegar á föstudag (10.feb) í hádeginu.

Það er þá rúm fyrir æfingu fimmtudaginn 16.febrúar ef einhver getur nýtt sér það og svo vikuna eftir það.

Hafið samband við ykkar raddformenn fyrir frekari upplýsingar.

07.02.2012 00:00

Æfing 7. feb. 2012

Fyrir æfingu í kvöld skulum við vera með nótur af:

Hver á sér fegra föðurland, Ofar regnbogans geislum, Í kvöld er glitra gullin ský, Í fjarlægð, Nótt, Í bljúgri bæn, Vikivaki, Ó, Guð vors lands.

Listinn yfir það sem við þurfum að hafa í möppunni okkar er að lengjast aðeins. Lítið á hann á blogginu hér fyrir neðan.

Munið eftir smáfuglunum.

MJK

22.01.2012 10:30

Æfing 24. jan 2012

Kæru söngfuglar

Þá eru komnar nýjar nótur af laginu Nótt. Þær eru miklu skýrari.
Síðan er nýtt lag, Vikivaki.
Þá er að hlaða niður:

Í blúgri bæn
Í fjarlægð 001
Nótt
Vikivaki.

Munið eftir smáfuglunum!!


MJK

17.01.2012 12:18

Í kvöld

Var að setja nýtt lag inn, "Í blúgri bæn og þökk til þín." Þeir sem ná því að prenta það út geri það og hafi tölulausa fólkið 

16.01.2012 13:29

Æfing 16.01.2012

Komið sæl kæru kórfélagar og gleðilegt ár!
Nú er æfing þriðjudaginn 17. janúar.

Ég vil biðja ykkur um að hlaða niður nýrri útgáfu af laginu "Í fjarlægð 001" sem er í Mappan mín á síðunni okkar.
Vinsamlega prentið nokkur aukaeintök ef hægt er.

Lagalistinn fyrir vorönn er hér fyrir neðan.

MJK

13.01.2012 08:59

Æfing 17. janúar 2012

Kæru Brokkkórsmeðlimir.

Nú hefjast æfingar þ. 17. janúar n.k.

Mappan okkar fyrir vorönn á því að líta svona úr þegar við byrjum að vinna:

Brokkkórinn - Lagalisti í janúar 2012

 

1.           Án þín - Með þér

2.           Ég er kominn heim

3.           Ég leit eina lilju í holti

4.           Frelsi ég finn

5.           Halelúja

6.           Hver á sér fegra föðurland

7.   Í bljúgri bæn

8.           Í fjarlægð

9.           Í kvöld er glitra gullin ský

10.           Íslandi allt!

11.         Ljóssins englar

12.         Maístjarnan

13.         Megi gæfan þig geyma

14.         Nótt

15.         Nú sefur jörðin

16.         Ofar regnbogans geislum

17.         Rósin

18.         Sprettur

19.         Stúlkan mín er mætust

20.         Undir stórasteini

21.  Vikivaki

22.         Þakklæti

23.         Þjóðsöngurinn, Ó, Guð vors lands.


Nota nú tímann og setja skipulagið í gang.


MJK


08.01.2012 11:33

Nýtt ár

Gleðilegt ár og takk kærlega fyrir samstarfið á liðnu ári.

Við hefjum æfingar þriðjudaginn 17.janúar.

Stjórnin

22.12.2011 14:46

Jólakveðja

Við fengum þessa frábæru jólakveðju frá Höfuðborgarstofu, smelli á hlekkinn og hafið hljóðið á.

http://www.visitreykjavik.is//PortalData/1/Resources//flash/jolakvedja-is.swf
    Flettingar í dag: 47
    Gestir í dag: 18
    Flettingar í gær: 109
    Gestir í gær: 35
    Samtals flettingar: 248330
    Samtals gestir: 57847
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 14:47:49